Bandarískur ráðherra: “Áttum okkur á landfræðilegu mikilvægi Íslands”
Ráðherra bandaríska flughersins, Deborah Lee James, heimsótti aðstöðu Landhelgisgæslunnar á flugvellinum í Keflavík og fundaði með íslenskum stjórnvöldum um áframhaldandi hlutverk Bandaríkjanna í loftvarnareftirliti NATO og stuðning Íslands við starfsemi NATO.
„Heimsókn mín var mjög dýrmæt. Bandaríski flugherinn tekur skuldbindingar sínar varðandi loftvarnareftirlit mjög alvarlega og við erum mjög þakklát fyrir samstarfið milli Íslands og hinna NATO þjóðanna. Við áttum okkur á landfræðilegu mikilvægi Íslands og hlökkum til áframhaldandi samstarfs okkar við að tryggja öryggi gagnvart sameiginlegum ógnum.” Segir ráðerrann í tilkynningu frá sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi.
Í tilkynningunni segir einnig að Deborah Lee James sé fullviss um að NATO muni styðja fjárhagslega við rekstur loftrýmisgæslunnar á flugvellinum í Keflavík.