Nýjast á Local Suðurnes

Var að stilla útvarpið og velti bílnum

Bifreið valt á Sandgerðisvegi í vikunni eftir að ökumaður hennar missti stjórn á henni þegar hann var að stilla útvarp eða spilara í henni á ferð.  Hann missti bifreiðina út í kant  og brá svo við það að hann kippti henni aftur inn á akbrautina með þeim afleiðingum að hún valt og endaði á toppnum á miðri akbraut. Vegalengdin frá þeim stað sem bifreiðin fór út af og þar til hún stöðvaðist mældist rúmir 200 metrar.

Ökumaðurinn var fluttur til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.  Skráningarnúmer voru fjarlægð af bifreiðinni.