Nýjast á Local Suðurnes

Strætó verður á ferðinni alla páskana

Strætó mun aka alla páskadagana. Yfir hátíðisdagana verður ekið samkvæmt hefðbundinni sunnudags áætlun.

  • Á skírdag, fimmtudaginn 24. mars, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun.
  • Föstudaginn langa, 25. mars, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun.
  • Laugardaginn 26. mars verður ekið samkvæmt hefðbundinni laugardagsáætlun.
  • Á páskadag, sunnudaginn 27. mars, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun.
  • Annan í páskum, mánudaginn 28. mars, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun.

Allar nánari upplýsingar má fá á strætó.is