Nýjast á Local Suðurnes

Ást tveggja Njarðvíkinga á íslenskri náttúru á sýningu í Duus Safnahúsum

Nú stendur yfir í Stofunni í Duus Safnahúsum sýning á verkum tveggja Njarðvíkinga, þeirra Áka Gränz heitins og Oddgeirs Karlssonar ljósmyndara sem báðir unnu og unna íslenskri náttúru. Sýningin samanstendur af 15 ljósmyndum Oddgeirs sem teknar eru víða á Reykjanesinu og grjóti úr safni Áka, sem meðal annars var ástíðufullur steinasafnari.

Við fráfall Áka eignaðist Reykjanesbær mikið steinasafn ásamt fjölda listaverka og á sýningunni núna má sjá úrval úr steinasafninu en listaverkin bíða betri tíma. Sýningin mun standa í sumar og eru bæjarbúar hvattir til að koma og njóta.