Hafa áhyggjur af því að hraun geti náð inn fyrir varnargarða

Veðurstofan hefur uppfært hættumat í ljósi þess að búast megi við nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi við Grindavík á næstu vikum. Hættumatið gildir til 30. júlí að öllu óbreyttu.
Sérfræðingar Veðurstofunnar hafa sett upp tvær mögulegar sviðsmyndir, sem sjá má hér fyrir neðan ásamt útskýringum sérfræðinga.
Sviðsmynd 1 – Eldgos með upptök milli Stóra-Skógfells og Sundhnúks (Miðhluti svæðis 3 á hættumatskorti). Svipuð staðsetning og eldgos sem hófust 18. desember 2023, 8. febrúar, 16. mars og 29. maí 2024.
- Líklegur aðdragandi er staðbundin smáskjálftahrina milli Stóra-Skógfells og Sýlingarfells, hröðun í aflögun og þrýstingsbreytingar í borholum á svæðinu.
- Mjög stuttur fyrirvari (innan við 30 mínútur).
- Hraun gæti náð að Grindavíkurvegi við Þorbjörn á innan við 1,5 klukkustundum og á innan við 3 klukkustundum að Grindavíkurvegi við Svartsengi utan varnargarða.
Sviðsmynd 2 – Eldgos með upptök sunnan við Sundhnúk, við Hagafell eða suður af Hagafelli (Syðsti hluti svæðis 3 á hættumatskorti og efsti hluti svæðis 4). Svipuð staðsetning og eldgos sem hófst 14. janúar 2024.
- Líklegur aðdragandi er smáskjálftahrina sem byrjar nærri Stóra-Skógfelli eða Sýlingarfelli og færist suður, hröðun í aflögun og þrýstingsbreytingar í borholum á svæðinu.
- Líklega yrði fyrirvari eldgoss á þessu svæði lengri en í sviðsmynd 1, en óvíst hversu mikið. Lengri fyrirvari ræðst af því hversu langt til suðurs kvikan brýtur sér leið áður en hún leitar upp á yfirborðið.
- Hraun gæti náð að Nesvegi og Suðurstrandavegi á innan við 1,5 klukkustund. Hraunflæði gæti mögulega lokað flóttaleiðum á landi á um 6 klukkustundum.
- Í þessari sviðsmynd gæti hraun náð til sjávar austan Grindavíkur á 1,5 til 3 klukkustundum. Ef hraun næði til sjávar gæti það valdið staðbundinni hættu vegna snöggrar kælingar á hrauni. Í fyrstu væri hætta vegna gjósku og gasmyndunar, fyrst og fremst saltsýru (HCI). Í um 500 m radíus frá þeim stað þar sem hraun kæmist í snertingu við sjó, væru aðstæður lífshættulegar.
- Kvikugangur sem nær suður fyrir Hagafell mun líklega valda verulegum sprunguhreyfingum í Grindavík.
- Í þessari sviðsmynd þarf að gera ráð fyrir þeim möguleika að hraun geti komið upp innan Grindavíkur. Einn möguleikinn er sá að hraun sem kemur upp úr gosopi norðan varnargarða við Grindavík geti flætt ofan sprungur og komið svo aftur upp um opnar sprungur innan bæjarmarkanna. Ekki er hægt að útiloka möguleika að gossprunga opnist innan Grindavíkur en í því tilfelli er talið líklegast að gossprunga myndi fyrst opnast norðan við bæinn áður en sprunga opnist innan bæjarmarkanna.
„Þær sviðsmyndir sem við birtum í dag eru byggðar á nýjustu gögnum og greiningum og þær gefa tilefni til þess að hafa áhyggjur af því að hraun geti náð inn fyrir varnargarða við Grindavík“ segir Matthew J. Roberts, framkvæmdastjóri þjónustu- og rannsóknasviðs á Veðurstofu Íslands. „Við þurfum því að vera undirbúin fyrir þann möguleika að hraun sem kemur upp úr gosopi norðan varnargarða ofan bæjarins geti leitað ofan í sprungukerfið sunnan Hagafells og leitt hraunstraum inn fyrir bæjarmörkin“ segir Matthew.
„Reynslan frá eldgosinu í janúar segir okkar að við getum ekki útilokað þann möguleika á að gossprunga opnist innan Grindavíkur. En í því tilfelli er líklegast að gossprunga myndi fyrst opnast norðan við bæinn áður en sprunga opnist innan bæjarmarkanna“.
„Þessu til viðbótar sýna hraunflæðilíkön að ef gýs við Hagafell gæti hraunflæði lokað flóttaleiðum á landi út úr bænum á nokkrum klukkustundum eftir að gos hefst“, segir Matthew.