Nýjast á Local Suðurnes

Ljósanótt: Kynning hjá Pílufélagi Reykjanesbæjar

Það verður nóg um að vera á Ljósanótt og eins og undanfarin ár verða hin ýmsu félög með kynningar á starfsemi sinni, þar á meðal Pílufélag Reykjanesbæjar sem verður með opið hús og kennslu föstudagskvöldið 4. september á milli kl.19:00 til 22:00.

Pílukynning verður í boði fyrir gesti og gangandi. Allir velkomnir að líta inn og prufa í endurbættri aðstöðu félagsins að Hrannargötu 6.

Laugardaginn 5. september verður svo Ljósanæturmótið haldið, mótið byrjar kl 13:00 og keppt verður í einmenning. Keppt er um farandbikar sem er staðsettur í húsi Pílufélags Reykjanesbæjar. Skráning í mótið er í síma 660-8172 og á staðnum til kl 12:30 á laugardeginum. Mótsgjaldið er 2500 kr.