Bættu 14 ára gamalt landsmet í boðsundi á HM
![david sund irb1](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/12/david-sund-irb1.jpg?resize=620%2C264)
Sveit Íslands í 4×50 m skriðsundi karla setti landsmet í greininni þegar hún varð í þrettánda sæti á heimsmeistaramótinu í 25 metra laug. Heimsmeistaramótið fer fram í Windsor í Kanada.
Davíð Hildiberg Aðalsteinsson frá ÍRB er í sveitinni ásamt þeim Aron Erni Stefánssyni, Viktor Mána Vilbergssyni og Kristni Þórarinssyni. Félagarnir syntu á tímanum 1:31,07 mínútu og bættu fjórtán ára gamalt met landssveitar frá 2002 sem var 1:32,29 mínúta.
Tíminn dugði drengjunum þó ekki til að komast í úrslit, en til þess þurfti að lenda í áttunda sæti eða ofar.