Nýjast á Local Suðurnes

Öflugum ljóskösturum stolið – Fagmannlega að verki staðið

Fjórum öflugum ljóskösturum sem lýsa upp vatnstankinn við Vatnsholt hefur verið stolið og af ummerkjum má sjá að fagmannlega var að verki staðið. Grindur voru skrúfaðar af og klippt á rafmagnið.

Listaverkið, sem vatnstankurinn nú er, er því óupplýstur. Þjófnaðurinn hefur verið tilkynntur til lögreglu og eru þeir sem vita eitthvað um málið eða hafa grunsemdir, beðnir um að hafa samband við Lögregluna á Suðurnesjum.

Vatnstankurinn var afhjúpaður sem listaverk á Ljósanótt árið 2013. Toyistar höfðu þá farið huldu höfði á bak við ábreiðu um nokkurra vikna skeið. Vatnstankurinn er mikið bæjarprýði og sést langt að.