Nýjast á Local Suðurnes

Nokkur fíkniefnamál á borð lögreglu

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af í gærkvöld vegna gruns um fíkniefnaneyslu reyndist hafa í fórum sínum umtalsvert magn af meintu amfetamíni, kannabis og þurrkuðum sveppum, auk áhalda til fíkniefnaneyslu.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að maðurinn hafi játað að eiga efnin.

Fleiri mál komu á borð lögreglu á síðasta sólarhring þar sem um vörslu meintra fíkniefna var að ræða en í þeim öllum var um minni háttar magn að ræða.

Þá hafa fáeinir ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæminu á undanförnum dögum.