Nýjast á Local Suðurnes

Fannar áfram í Grindavík

Bæj­ar­stjórn Grinda­vík­ur­bæj­ar hef­ur samþykkt með at­kvæðum allra bæj­ar­full­trúa að end­ur­ráða Fann­ar Jónas­son í starf bæj­ar­stjóra til næstu fjög­urra ára.

Fann­ar tók við sem bæj­ar­stjóri árið 2017 og var end­ur­ráðinn í kjöl­far sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna 2018. Hann er viðskipta­fræðing­ur af end­ur­skoðun­ar­sviði (Cand Oecon) frá Há­skóla Íslands og er einnig með MBA-gráðu þaðan, að því er seg­ir í til­kynn­ingu.