Norðurljósaatvik lögreglunnar á Suðurnesjum rataði í heimsfréttirnar
Breska dagblaðið Independent birti grein um afskipti lögreglunnar á Suðurnesjum af erlendum ferðamönnum sem áttu í erfiðleikum með að halda einbeitningu við akstur bifreiða þegar athyglin beindist að norðurljósum.
Lögreglan greindi frá þessu í tilkynningu, sem meðal annars var birt á Suðurnes.net, á föstudag, en þar sagði af tveimur hópum erlendra ferðamanna sem lögregla hafði afskipti af með stuttu millibili vegna svona mála og lögregla grunaði um ölvun við akstur.
„Ölvun reyndist þó ekki vera ástæða þessa heldur tjáði hann lögreglumönnum að hann hefði skyndilega orðið var við norðurljós og ekki tímt að taka af þeim augun þótt akstrinum héldi hann áfram. Honum var bent á að stöðva bifreiðina á öruggum stað ef hann ætlaði að halda áfram að horfa upp í himingeiminn,“ sagði í tilkynningu lögreglu á föstudag.
Fréttina frá því á föstudag má finna hér. Hér má svo finna frétt Independent af málinu.