Nýjast á Local Suðurnes

Auglýst eftir styrkumsóknum í Menningarsjóð

Á reykjanesbaer.is er einnig hnappurinn Allar umsóknir á forsíðu. Þar undir Menning er smellt á viðeigandi umsókn sem flytur viðkomandi yfir á Mitt Reykjanes.

Þjónustusamningar við menningarhópa

Ákveðnu fjármagni verður varið í þjónustusamninga við menningarhópa í bæjarfélaginu árið 2020 eins og verið hefur. Um ýmis konar þjónustu af hálfu menningarhópanna getur verið að ræða, s.s. þátttöku í viðburðum, námskeiðahald o.fl. í þeim dúr gegn ákveðinni greiðslu.

Hópar sem þegar eru með þjónustusamninga eru beðnir um að skila samantekt um starfsemi liðins starfsárs með umsókn sem rökstuðningi fyrir endurnýjun samnings.

 Verkefnastyrkir til menningartengdra verkefna

Ákveðnu fjármagni verður varið í verkefnastyrki á árinu 2020 sem miða að því að hægt  verði að fá fjármagn til einstakra menningarverkefna sem standa munu bæjarbúum til boða á árinu.

Nánari upplýsingar eru veittar í þjónustuveri Reykjanesbæjar í síma 421 6700.