Nýjast á Local Suðurnes

Hægt að fylgjast með hljóðstigi frá flugumferð á rauntíma við Grænás

Isavia hefur opnað fyrir niðurstöður hljóðmælinga við Grænás á áhrifum flugumferðar á íbúa og byggð.  Nú geta íbúar fylgst með hljóðstigi frá flugumferð á rauntíma og gert betur grein fyrir því í ábendingum hvaða flug skapa ónæði, eins og segir á heimasíðu Isavia.

Á íbúafundi sem Isavia hélt um miðjan maí síðastliðinn kom fram að mælistöðvar yrðu þrjár í Reykjanesbæ, ofan við Eyjabyggð og við Háaleitisskóla til viðbótar við Grænás. Um er að ræða fyrsta fasa kerfisins sem hefur verið settur í loftið, en í fasa tvö verða flugupplýsingar tengdar við hljóðmælingarnar. Einnig er stefnan  að setja upp loftgæðamæla, að því er fram kom á áðurnefndum íbúafundi. Fara á upplýsingar um hljóðmælingarnar á vef Isavia.

Samkvæmt upplýsingum á vef Umhverfisstofnunar eru hættumörk hávaða talin vera við 80 – 85 dB jafngildishljóðstig eða við styttri hljóðtoppa 120 – 130 dB. Hljóð frá þotu í flugtaki í 200 m fjarlægð er þar sögð vera 100 dB.

Hér má nálgast niðurstöður hljóðmælinga við Grænás.