Nýjast á Local Suðurnes

Gripinn með fjögur kíló af hassi – Átti að fá milljón í greiðslu

Lögreglan á Suðurnesjum handtók íslenskan karlmann á þrítugsaldri  síðastliðinn föstudag í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eftir að tollgæslan hafði fundið fíkniefni í fórum hans. Um var að ræða tæplega fjögur kíló af hassi sem maðurinn hafði komið fyrir undir fölskum botni í ferðatösku sinni.

Maðuinn var að koma frá Spáni þegar hann var handtekinn. Hann játaði sök og kvaðst hafa átt að fá eina milljón króna fyrir að koma efninu inn í landið.

Málið er í rannsókn.