Nýjast á Local Suðurnes

Einungis hægt að sækja um lóðir á rafrænu formi

Mynd: Skrá.is

Frá og með morgundeginum, 1. mars verða umsóknir um lóðir í Reykjanesbæ einungis afgreiddar á rafrænu formi. Á sama tíma breytist viðstals- og símatími byggingarfulltrúa og verður mánudaga til fimmtudaga kl. 10-12 frá og með 1. mars.

Þeir sem hyggjast sækja um lóð eða lóðir í Reykjanesbæ þurfa frá 1. mars að sækja um rafrænt í gegnum þjónustugáttina  Mitt Reykjanes. Slóðin er https://www.mittreykjanes.is. Nota þarf Íslykil eða rafræn skilríki til að skrá sig inn á Mitt Reykjanesbæ.

Viðtals- og símatímar byggingarfulltrúa, sem voru á þriðjudögum til föstudaga í hverri viku, verða frá 1. mars á mánudögum til fimmtudaga kl. 10-12.

Með því að smella á þennan tengil opnast umsóknr um Íslykil

Með því að smella á þennan tengil opnast vefur rafræns skilríkis