Skákfélag Reykjanesbæjar býður upp á ókeypis skákæfingar
Skákfélag Reykjanesbæjar býður upp á ókeypis skákæfingar fyrir 12 ára og eldri á fimmtudögum kl.19:30 – 21:30 í húsnæði Sjálfstæðisflokksins í Njarðvík, sem er við hliðina á Valgeirsbakaríi.
Allir eru velkomnir á æfingar félagsins og sem fyrr segir kostar ekkert að æfa. Kennari er formaður félagsins Siguringi Sigurjónsson sími 691-3007.