Gómaður við að reyna að stela sjónvarpstæki á hóteli
![hotelherbergi](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/04/hotel-1330846_1280.jpg?resize=620%2C264)
Rúmlega þrítugur karlmaður var staðinn að verki þegar hann reyndi að stela sjónvarpi á hóteli í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Starfsmaður hótelsins kom að honum þar sem hann var búinn að taka sjónvarpið niður úr hillu í setustofu og draga það fram á gang sem liggur að neyðarútgangi. Þegar hann varð starfsmannsins var sleppti hann sjónvarpinu og hljóp út af hótelinu.
Hinn óboðni gestur lét ekki staðan numið því í framhaldinu reyndi hann að fara inn í íbúð og bíla sem stóðu mannlausir. Lögregla hafði fljótlega upp á manninum. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem tekin var af honum skýrsla.