Nýjast á Local Suðurnes

Ríkiskaup sjá um útboð á byggingu nýrrar slökkvistöðvar

Bygging nýrrar slökkvistöðvar Brunavarna Suðurnesja, sem fyrirhugað er að reisa að Flugvöllum 29 í Reykjanesbæ verður boðin út á næstunni í samstarfi við Ríkiskaup.

Umræður um framkvæmd fyrirhugaðs útboðs sköpuðust á stjórnarfundi Brunavarna Suðurnesja á dögunum, en þar var framkvæmd útboðsins rædd. Rætt var hvort rétt væri að bjóða verkið út í heild eða í nokkrum hlutum, og var ákvörðun tekin um að bjóða allt verkið út. Þá kom fram á fundinum að hönnunarvinna hafi tafist, en að nú sjái fyrir endan á henni.