Alma María nýr framkvæmdastjóri hjúkrunar á HSS

Alma María Rögnvaldsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra hjúkrunar á HSS, tímabundið til eins árs. Hún hefur hafið störf og er ráðin til loka september á næsta ári.
Alma hefur gegnt starfi fagstjóra hjúkrunar á Heilsugæslunni Hamraborg frá árinu 2017 og hefur unnið hjá Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins með hléum frá árinu 1999.
Hún útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur árið 1994 og hefur síðan lokið meistaraprófi í heilbrigðisvísindum. Þá hefur hún lokið diplómanámi í heilbrigðisvísindum með áherslu á klíníska heilsugæslu í héraði og einnig diplómanámi í stjórnun innan heilbrigðisþjónustunnar.