Nýjast á Local Suðurnes

Birta áhugavert myndband frá framkvæmdum við flugstöðina

Stækkun mannvirkja á Keflavíkurflugvelli undanfarin ár hefur vart farið framhjá þeim sem á leið þar um, en uppbyggingin hefur verið með ólíkindum, líkt og fjölgun ferðamanna sem þar fara um.

Isavia hefur birt afar áhugavert myndband á Facebook, sem sýnir framkvæmdir við stækkun suðurbyggingar á Keflavíkurflugvelli á innan við mínútu, en framkvæmdir við stækkunina hófust árið 2014 og byggingin var svo tekin í notkun árið 2015. Með tilkomu suðurbyggingarinnar bættust við 6 ný hlið sem flytja farþega með rútum að fjarstæðum