Nýjast á Local Suðurnes

Sérfræðingar svara spurningum Grindvíkinga

Um helgina býðst Grindvíkingum að koma saman í Kvikunni menningarhúsi að Hafnargötu 12. Eldfjalla- og jarðskjálftafræðingar frá Veðurstofu Íslands auk fulltrúa frá Almannavörnum  ríkislögreglustjóra og Grindavíkurbæ munu fara yfir stöðuna og svara spurningum gesta.

Á laugardag verður streymt frá YouTube síðu bæjarins en hægt verður að nálgast tengil á streymið bæði á Facebook síðu bæjarins og á vefsíðu sveitarfélagsins, Grindavík.is og hefst útsending klukkam 14:30. Hægt verður að senda spurningar í gegnum streymið. 

Hægt verður að nálgast upptökur af streyminu á YouTube vef bæjarins. 

Á sunnudaginn verður pólskur túlkur á staðnum svo hægt er að spyrja og svara spurningum á pólsku.

ATH. af sóttvarnarástæðum er 50 manna hámark í hvorum sal og grímuskylda. 

Boðið verður upp á kaffiveitingar.