Nýjast á Local Suðurnes

Vilja bæta hæð við hótel

Mænir 230 ehf. hefur óskað heimildar til að stækka hótel við Hafnargötu 57 í Reykjanesbæ. Gangi áformin eftir mun hæð bætast ofan á byggingu sem snýr að Vatnsnesvegi samkvæmt uppdrætti.

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar samþykkir áformin með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda.