Nýjast á Local Suðurnes

Vara við mikilli hálku – Gengur hægt að salta og sanda

Mjög varasamt að vera á ferðinni vegna mikillar hálkumyndunnar í Reykjanesbæ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu.

Unnið er að því að salta og sanda en gengur hægt þar sem rignir niður og myndar hálku jafnharðan aftur.

Biðjum við íbúa að hafa þetta í huga og fara sérstaklega varlega ef þeir þurfa að vera á ferðinni, segir í tilkynningunni.