Nýjast á Local Suðurnes

Framlengja drónabanni yfir Grindavík

Vegna jarðskjálftavirkni í og við Grindavík og nauðsynlegs neyðar- og rannsóknaflugs, hefur Samgöngustofa að beiðni Samhæfingarstöðvar Almannavarna bannað drónaflug á svæði sem nær í fjögurra kílómetra radius umhverfis hnit 6350N 2226W.

Bannið gildir til kl. 18:00 þann 26. Janúar 2024. Undanþágubeiðnir berist samhæfingarstöð Almannavarna í netfangið info@sst.is eða í síma 831-1644.