Nýjast á Local Suðurnes

Heimila stækkun hótels við Hafnargötu

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur veitt heimild til að stækka hótel við Hafnargötu 57, hæð bætist ofan á A hluta sem snýr að Vatnsnesvegi samkvæmt uppdrætti Ark-aust.

Grenndarkynningu er lokið. Athugasemdir bárus, en Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir samantekt og svör við andmælum dags. 19. janúar 2024. Tilmæli til umsækjanda er að aðstaða fyrir rútur á svæðinu verði bætt í samráði við umhverfis- og framkvæmdasvið.