Nýjast á Local Suðurnes

Ráðherra staðfestir örnefnið Fagradalshraun

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur með erindi dagsettu 2. júlí sl. staðfest ákvörðun bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar um að það hraun sem nú rennur við Fagradalsfjall verði nefnt Fagradalshraun. Þetta kemur fram á vef sveitarfélagsins.

Forliðurinn vísar til Fagradalsfjalls sem dregur nafn sitt af dal, vestan í fjallinu. Fagradalsfjall var og er eitt þekktasta örnefnið í nágrenni hraunsins. Þá vísar forliðurinn einnig til Fagradalsfjallskerfisins, eins af nokkrum eldstöðvakerfum á Reykjanesskaga en hraunið rennur úr Fagradalsfjallskerfinu.

Grindavíkurbær óskaði í lok mars eftir tillögum frá almenningi að heitum á ný náttúrufyrirbæri innan sveitarfélagsins. Alls bárust 339 hugmyndir að heiti á hraunið. Bæjarstjórn samþykkti örnefnið Fagradalshraun á fundi sínum þann 25. maí og vísaði örnefninu til staðfestingar mennta- og menningarmálaráðherra með vísan til laga nr. 22/2015.