Nýjast á Local Suðurnes

Ógnaði fólki með sveðju í Innri-Njarðvík

Maður ógnaði tveimur mönnum með sveðju í Dalshverfi í Innri-Njarðvík um níuleytið í gærkvöld. Sjónarvottur segir manninn hafa sýnt ógnandi tilburði og sveiflað stórri sveðju í átt að bíl sem mennirnir sátu í.

Á fréttvef Rúv segir að árásamaðurinn hafi komst undan en sveðjan fundist á vettvangi. Lögregla segir að ekki hafi komið til átaka og vitað sé hver maðurinn var. Lögregla gerir ráð fyrir því að haft verði uppi á manninum vegna málsins.