Nýjast á Local Suðurnes

Skima á Keflavíkurflugvelli

Gert er ráð fyrir að eigi síðar en 15. júní næstkomandi geti þeir sem koma til landsins, Íslendingar jafnt sem erlendir ferðamenn, farið í COVID-19 próf á Keflavíkurflugvelli. Reynist það neikvætt þurfa þeir ekki að fara í tveggja vikna sóttkví.

Þetta kom fram á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar fyrr í dag. Þar kom einnig fram að þetta verði til reynslu í tvær vikur og ákvörðun tekin um framhaldið í kjölfarið.