Nýjast á Local Suðurnes

Ekki bólusett gegn mislingum á Suðurnesjum í bili

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja vekur athygli á því á Facebook-síðu sinni að boð sóttvarnarlæknis um bólusetningu gegn mislingum fyrir óbólusetta einstaklinga gildir eingöngu fyrir einstaklinga á höfuðborgarsvæðinu og á Austurlandi, en ekki á Suðurnesjum í bili.

Íbúar Suðurnesja, sérstaklega foreldrar óbólusettra barna, eru þó hvattir til að fylgjast með þróun mála hér á Facebook-síðu HSS, vef stofnunarinnar, www.hss.is og vef Embættis landlæknis.