Nýjast á Local Suðurnes

Götulokanir vegna bæjarhátíðar

Sjóarinn síkáti, bæjarhátíð Grindvíkinga fram fer helgina 2.-4. júní næstkomandi og líkt og undanfarin áður er meginþungi hátíðarhaldanna við Kvikuna, það er á Hafnargötunni og á Seljabót milli Mánagötu og Ránargötu.

Á vef Grindavíkurbæjar er athygli vakin á þeim lokunum sem verða á svæðinu frá kl. 13:00 föstudaginn 2. júní til kl. 18:00 sunnudaginn 4. júní, eða á meðan hátíðarhöldunum stendur.

Settar verða upp lokanir/þrengingar á eftirfarandi stöðum:

  • Milli Hafnargötu 12 og 12a (Þorbjarnar og Kvikunnar)
  • Milli Hafnargötu 9a og 14 (Grindarinnar og Vísis)
  • Við gatnamót Mánagötu og Seljabótar (neðan við Þorbjörn)
  • Við gatnamót Ránargötu og Seljabótar (neðan við Vísi)

Hafnargötu verður hægt að keyra eftir að dagskrá lýkur á laugardegi og þar til hún hefst á sunnudagsmorgni. Búast má við því að þrengingar verði settar upp fimmtudaginn 1. júní.