Lengri opnunartímar í sundlaugum
![sund](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/12/float-462874_1280.jpg?resize=620%2C264)
Sumaropnun Vatnaveraldar tók gildi í laugardaginn 1. júní og gildir til 20. ágúst. Í sumar verður opið kl. 6:30 til 21:30 mánudaga til föstudaga og kl. 9:00 til 18:00 laugardaga og sunnudaga. Sundlaugagestir hafa 10 mínútur til að yfirgefa sundmiðstöðina eftir lokunartíma.
Í sundlaug Njarðvíkur tekur sumaropnun gildi föstudaginn 7. júní og gildir til 19. ágúst. Þá verður opið í gufu, heita potta og Massa mánudaga til föstudaga kl. 10:00 til 20:00. Lokað verður laugardaga og sunnudaga.
Allar nánari upplýsingar um sundlaugar í Reykjanesbæ má nálgast hér