Nýjast á Local Suðurnes

Sunddeild ÍRB með 10 Íslandsmeistaratitla um helgina

Sunddeild ÍRB fór mikinn á Íslandsmótinu í 50 metra laug, sem fram fór um helgina. Deildin nældi í tíu Íslandsmeistaratitla, en afrakstur helgarinnar var 10 gull, 12 silfur og 10 brons.

Eitt meyjamet í 100m bringusundi hjá Evu Margréti Falsdóttur ásamt mörgum bestu tímum, fullt af innanfeálagsmetum ásamt góðum bætingum hjá mörgum sundmönnum liðsins.

Flesta titla í einstaklingsgreinum unnu þau Þröstur Bjarnason og Sunneva Dögg Robertson. Þau unnu bæði tvær greinar en jafnframt nældi Þröstur sér líka í tvö gull í boðsundum.

Verðlaunaskiptingin:

Gull
200m skriðsund karla Kristófer Sigurðsson
400m skriðsund karla Þröstur Bjarnason
1500m skriðsund karla Þröstur Bjarnason
200m bringusund karla Baldvin Sigmarsson
50m flugsund karla Davíð Hildiberg Aðalsteinsson
4 x 200m skriðsund karla
4 x 100m fjórsund karla
400m skriðsund kvenna Sunneva Dögg Robertson
1500m skriðsund kvenna Eydís Ósk Kolbeinsdóttir
400m fjórsund kvenna Sunneva Dögg Robertson

Silfur
100m skriðsund karla Kristófer Sigurðsson
800m skriðsund karla Þröstur Bjarnason
100m flugsund karla Davíð Hildiberg Aðalsteinsson
200m flugsund karla Baldvin Sigmarsson
4 x 100m skriðsund karla
200m skriðsund kvenna Sunneva Dögg Robertson
800m skriðsund kvenna Eydís Ósk Kolbeinsdóttir
200m baksund kvenna Íris Ósk Hilmarsdóttir
50m bringusund kvenna Karen Mist Arngeirsdóttir
100m bringusund kvenna Karen Mist Arngeirsdóttir
200m flugsund kvenna Gunnhildur Björg Baldursdóttir

Brons
50m skriðsund karla Kristófer Sigurðsson
100m bringusund karla Baldvin Sigmarsson
100m baksund kvenna Íris Ósk Hilmarsdóttir
200m bringusund kvenna Karen Mist Arngeirsdóttir
200m fjórsund kvenna Sunneva Dögg Robertson
400m fjórsund kvenna Stefanía Sigurþórsdóttir

4 x 100m skriðsund kvenna
4 x 200m skriðsund kvenna
4 x 100m fjórsund kvenna