Nýjast á Local Suðurnes

70 milljóna eign á sölu – Miklir möguleikar eftir breytingar á deiliskipulagi

Eignamiðlun Suðurnesja er með á söluskrá Hafnargötu 48, 230 Reykjanesbæ, en í kjölfar breytinga á deiliskipulagi býður eignin og lóðin sem henni fylgir upp á mikla möguleika til viðbyggingar.

Um er að ræða 170 fm einbýlishús á þremur hæðum, ásamt 28 fm bílskúr. 
Eignin býður uppá mikla möguleika og er virkilega vel staðsett í hjarta bæjarins, í göngufæri við alla helstu þjónustu, segir í auglýsingu.

Til viðbótar húsinu má byggja rúmlega 600 fm. sem sé 5 íbúðarhús.

Möguleikarnir liggja í að hægt er að gera húsið upp og búa í því eða halda því í leigu. Síðan er möguleiki að byggja á lóðinni, í samræmi við tillögu á deiluskipulagi sem gert var á milli Hafnargötu og Suðurgötu, segir einnig.

Hér má sjá tillögu af nýju deiliskipulagi.
https://www.jees.is/copy-of-hafnargata-12