Nýjast á Local Suðurnes

ÍAV bauð best í tvöföldun Reykjanesbrautar

Mynd: Skjáskot You-tube / Ívar Gunnarsson

Tilboð voru opnuð í tvöföldun Reykjanesbrautar á um 5,6 km kafla milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns  ásamt aðliggjandi hliðarvegum. Einnig er inni í verkinu bygging fimm brúarmannvirkja og einna undirganga úr stáli. Verk þetta er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðarbæjar, HS Veitna, Mílu, Orkufjarskipta, Ljósleiðarans, Carbfix og Veitna. 

ÍAV átti lægsta tilboðið, rétt tæplega 4 milljarða króna, en þrjú tilboð bárust, eins og sjá má hér fyrir neðan. Verkinu skal að fullu lokið 30. júní 2026.

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik þús.kr.
Ístak hf., Mosfellsbæ5.137.962.664102,11.160.528
Áætlaður verktakakostnaður5.033.746.194100,01.056.312
Suðurverk hf. og Loftorka Reykjavík ehf., Kópavogi4.294.280.87985,3316.847
Íslenskir aðalverktakar hf., Reykjavík3.977.434.260