Nýjast á Local Suðurnes

Búist við að Stefan Bonneau fái nokkrar mínútur í kvöld

Stefan Bonneau má allt eins búast við því að fá að spila nokkrara mínútur með Njarðvíkingum gegn Stjörnunni í öðrum leik liðanna í úrslitakeppni Dominos-deildarinnar í körfuknattleik, sem fram fer í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld. Það yrði þá fyrsti leikurinn sem hann tæki þátt í með aðalliði Njarðvíkinga síðan hann sleit hásin í september síðastliðnum.

Teitur Örlygsson aðstoðarþjálfari Njarðvíkinga staðfesti þetta í samtali við körfuboltavefinn Karfan.is

“Oddur bað hann um smá hjálp og Stefan fannst gott að heyra það. Ég geri ráð fyrir því að hann hvíli Odd í kvöld þegar þurfa þykir.” sagði Teitur kíminn í samtali við karfan.is.

Bonneau lék tæpan stundarfjórðung með B-liði Njarðvíkinga í 2. deildinni á dögunum og þótti standa sig ágætlega miðað við að hafa verið frá allt tímabilið.