(Ó)heppnasti markvörður heims er kominn í blakið – Myndband!
Óheppnasti markvörður heims, Scott Sterling, sem á einhvern ótrúlegan hátt varði fjöldan allan af vítaspyrnum með andlitinu og gjörsamlega sigraði internetið í kjölfarið, hefur hafið íþróttaiðkun á ný.
Að þessu sinni reynir kappinn fyrir sér í blaki og sem fyrr keppir hann fyrir Yale-háskólann. Það er óhætt að segja að hann standi sig með miklum sóma og sem fyrr er það andlitið á íþróttamanninum unga sem fær að kenna á því.
Hér fyrir neðan er að finna bæði myndböndin sem samtals hafa fengið yfir 40 milljón áhorf á Youtube.