Nýjast á Local Suðurnes

Samkaup í áfengið

Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri Samkaupa, segir að fyrirtækið muni koma til með að bjóða upp á áfengissölu í netverslun sinni. Samkaup hafi þegar átt samtöl við stærstu vínbirgja landsins og að sögn Gunnars er fyrirtækið í startholunum með verkefnið.

„Þetta er mjög langt komið hjá okkur, en það truflar mann að það sé ekki búið að klára áfengisfrumvarpið og þýðir það að maður endi alltaf á því að fara einhverjar krókaleiðir. Þetta hlýtur hins vegar að ýta við kerfinu. Það er bara óþarfa vesen og kostnaður að fara einhverjar krókaleiðir til að taka þátt í samkeppnismarkaði,” segir Gunnar í samtali við Viðskiptablaðið.