Nýjast á Local Suðurnes

Slökkvilið kallað út vegna elds í fjölbýlishúsi

Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja hefur verið kallað út vegna elds í fjölbýlishúsi við Bogabraut á Ásbrú í Reykjanesbæ.

Fram kemur á Vísi.is að slökkvilið hafi verið kallað út klukkan 8:33. Slökkvilið er á leiðinni á svæðið og fengust því ekki upplýsingar um umfang eldsins.

Uppfært klukkan 9:20: Vísir.is, sem greindi fyrst frá hefur eftir Brunavörnum Suðurnesja að eldurinn hafi verið minniháttar, en slökkvilið er þó enn að störfum. Frekari upplýsingar liggi ekki fyrir að svo stöddu.