Pólsk menningarhátíð í undirbúningi
![bokasafn reykjanesb](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/03/bokasafn-reykjanesb.jpg?resize=620%2C264)
Undirbúningur árlegrar pólskrar menningarhátíðar, sem haldin verður í Reykjanesbæ þann 9. nóvember, er farinn vel af stað og vinnur hópur sjálfboðaliða að hugmyndavinnu, undirbúningi og framkvæmd. Enn er pláss fyrir fleiri sjálfboðaliða.
Áhersla ársins í ár eru persónulegar sögur og vinátta. Sem dæmi geta sjálfboðaliðar komið að því að gera mat fyrir pólskan götumarkað og/eða tekið þátt í listsýningu með því að deila sinni persónulegu sögu .
Áhugasamir eru hvattir til þess að hafa samband við Hilmu Hólmfríði Sigurðardóttur, verkefnastjóra fjölmenningamála, s. 421 6700, hilma.h.sigurdardottir@reykjanesbaer.is eða Katarzyna Calicki, sem vinnur að hátíðinni í samstarfi við Reykjanesbæ, calicka.k@gmail.com.