Nýjast á Local Suðurnes

Bandarísk herskip á leið til landsins – Þjónustuð frá varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli

Fjögur bandarísk herskip, USS Normandy, USS Lassen, USS Forrest Sherman og  USS Farragut munu vera staðsett hér á landi tímabundið. Líklegt er að skipin fjögur verði staðsett á Suðurnesjum, en bandaríski sjóherinn hefur sett upp aðstöðu fyrir allt að 30 hermenn sem munu þjónusta skipin hér á landi á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá bandaríska sjóhernum. Ekki kemur fram í tilkynningunni hversu lengi skipin munu vera staðsett hér við land en haft er eftir James G. Fogger III, yfirmanni sjóhersins í Evrópu og Afríku að Ísland sé ákjósanlegur staður fyrir skipin vegna staðsetningar landsins. Þá er haft eftir honum að Íslendingar séu sterkir bandamenn og vera skipanna hér á landi muni styrkja þau bönd enn frekar.

Skipin, sem eru þegar lögð af stð hingað til lands frá Florida í Bandaríkjunum, eru meðal annars búin öflugum flugskeytum og árásarþyrlum.

 

Uppfært kl. 00.14: Upplýsingafulltrúi Utanríkisráðuneytisins segir að umrædd skip séu ekki á leið til landsins. Um séu að ræða skip sem hafi verið í Norður-Atlantshafi, en þau séu nú farin af hafsvæðinu. Upplýingafulltrúinn staðfesti að um 30 manns hafi verið hér á landi í tengslum við prófun á hreyfanlegri stjórnstöð flotans, en þeirri prófun sé nú lokið.

Fréttamiðillinn Arctictoday greindi frá því að skipin hafi lagt úr höfn í Flórída undir lok septembermánaðar og væru á leið hingað til lands, en ekki væri ljóst hvenær þau væru væntanleg til Íslands. Sagt var að skipin hafi enga varanlega starfstöð í Evrópu og þess vegna muni 30 manna áhöfn fá tímabundna aðstöðu hér á landi. Miðillinn hefur hvorki dregið frétt sína til baka né leiðrétt.