Nýjast á Local Suðurnes

Ferðamenn veltu buggy-bíl við Grindavík

Fjórir erlendir ferðamenn veltu svokölluðum fjórhjólabíl (buggy) um síðastliðna helgi, en lögreglan á Suðurnesjum fékk tilkynningu þess efnis að bílvelta hefði orðið í Stóra Leirdal, um það bil 6 – 7 kílómetra austur afa Grindavík. Tveir menn voru sagðir slasaðir.

Þarna reyndist eins og áður sagði um að ræða svokallaðan fjórhjólabíl með fjórum erlendum ferðamönnum innanborðs sem hafði oltið á slóða austan við Ísólfsskála. Mennirnir tveir  sem kenndu sér meins voru fluttir undir læknishendur, annar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en hinn á bráðamóttökuna í Fossvogi. Ekki reyndist vera um alvarleg meiðsl að ræða.