Nýjast á Local Suðurnes

Lögregla varar við hálku og sól

Lögreglan á Suðurnesjum vekur athygli ökumanna og vegfarenda á að nú er orðið ansi hált á morgnana og sól lágt á lofti, sem getur haft áhrif á sýn ökumanns.

Eitthvað hefur verið um slys vegna hálku á svæðinu það sem af er degi, meðal annars á Sandgerðisvegi. Ekki er vitað hvort meiðsli hafi orðið á fólki.

Veðurspáin fyrir næstu daga segir að það verði frost, bjart og hæglætisveður sem skapar einmitt þessar aðstæður. Við viljum því biðja ökumenn um að fara varlega, flýta sér hægt því við viljum að allir komist heilir heim. Farið varlega í umferðinni og flýtum okkur hægt og komust heil heim.