sudurnes.net
Ferðamenn veltu buggy-bíl við Grindavík - Local Sudurnes
Fjórir erlendir ferðamenn veltu svokölluðum fjórhjólabíl (buggy) um síðastliðna helgi, en lögreglan á Suðurnesjum fékk tilkynningu þess efnis að bílvelta hefði orðið í Stóra Leirdal, um það bil 6 – 7 kílómetra austur afa Grindavík. Tveir menn voru sagðir slasaðir. Þarna reyndist eins og áður sagði um að ræða svokallaðan fjórhjólabíl með fjórum erlendum ferðamönnum innanborðs sem hafði oltið á slóða austan við Ísólfsskála. Mennirnir tveir sem kenndu sér meins voru fluttir undir læknishendur, annar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en hinn á bráðamóttökuna í Fossvogi. Ekki reyndist vera um alvarleg meiðsl að ræða. Meira frá SuðurnesjumLögregla fær buggyTvær bílveltur og fjórhjólaslys á Suðurnesjum um helginaBjóða upp á skotnámskeið fyrir börn og unglingaHeimsmeistari unglinga með skáknámskeið í VogumBúist við varasömum akstursskilyrðum á Reykjanesbraut með kvöldinuMarkasúpur gætu tryggt sæti í LengjudeildinniBjörgunarsveitin Suðurnes kynnir nýliðastarfiðBjóða Foreldrum tveggja ára barna á fræðslufund um málþroskaBílvelta á Reykjanesbraut og árekstur á GrindavíkurvegiVegavinnufólk í lífshættu – Hraðakstur vegfarenda skapar stórhættu