Nýjast á Local Suðurnes

Óska eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar óskar eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga 2023. Íbúum gefst kostur á að senda inn tilnefningar um þá einstaklinga, garða, götur, svæði, stofnanir, félagasamtök eða fyrirtæki, sem þeim finnst koma til greina.

Í ár verður lögð áhersla á fjölbreytta garða með náttúrulegu yfirbragði, nytjagarða til ætis í bland við snyrtilega og vel viðhaldna garða. Ár hvert er veitt viðurkenning fyrir vel uppgerð eldri hús og undanfarin ár hafa verið veitt viðurkenning fyrir framlag til umhverfis og samfélags. Íbúar eru hvattir til að senda inn tilnefningu á Betri Reykjanesbærfyrir 15. ágúst, segir í tilkynningu.

Viðurkenningar verða veittar á Ljósanótt.