Nýjast á Local Suðurnes

Gígur myndaðist þegar handsprengju var eytt – Fólk gæti varúðar á svæðinu

Liðsmenn sprengjueyðingarsveitar Landhelgisgæslunnar sáu um að eyða virkri handsprengju sem fannst á þekktu sprengjuæfingasvæði gamla varnarliðsins. Talið er að handsprengjan hafi verið í jörðu og komið upp á yfirborðið í jarðvegslyftingum. Vel gekk að eyða sprengjunni.

Umrætt svæði hefur margoft verið leitað og hreinsað en endrum og sinnum finnast þar sprengjur á borð við þessa sem koma upp á yfirborðið, segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Landhelgisgæslan leggur því áherslu á að fólk gæti varúðar á svæðinu. Leiki grunur á að um sprengju sé að ræða er mikilvægt að láta lögreglu vita.