Nýjast á Local Suðurnes

Fimmtánþúsundasti íbúinn fæddist á HSS á föstudag

Íbúatala Reykjanesbæjar fór upp í 15.000 á föstudaginn þegar sprækur strákur kom í heiminn á ljósmæðravakt Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.

Af þessu skemmtilega tilefni mætti Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri á fæðingardeildina og færði fjölskyldunni blómvönd fyrir hönd bæjarins.

fimmtanthusundasti ibuinn

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri leit við á fæðingardeildina

Drengurinn vóg 3.995 gr. og var 52 cm langur við fæðingu. Hann er annað barn foreldra sinna, þeirra Katarzynu Helenu Szczepanska og Maciej Palamar en fyrir eiga þau dótturina Susan Rosa fædda árið 2013. Mæðginunum heilsast vel. Ljósmóðirin sem tók á móti drengnum hér á ljósmæðravakt HSS heitir Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, segir á heimasíðu HSS.

Mikil fjölgun hefur verið í Reykjanesbæ síðustu ár, sem og á öllu þjónustusvæði HSS. Þar hefur íbúum fjölgað um tæp 30% frá árinu 2005, úr rúmlega 17.000 manns í rúmlega 22.000, þróun íbúafjölda Reykjanesbæjar má sjá á kortinu hér fyrir neðan.

ibuathroun rnb