Nýjast á Local Suðurnes

Skólasetning framundan – Tæplega 3000 nemendur í grunnskólum Reykjanesbæjar

Nemendur í grunnskólum Reykjanesbæjar munu mæta tin náms á næstu dögum, en skólasetning verður fimmtudaginn 22. ágúst og föstudaginn 23. ágúst. Nánari upplýsingar fyrir hvern skóla eru birtar á heimasíðum þeirra, segir í tilkynningu á vef Reykjanesbæjar.

Um 260 fyrstu bekkingar eru nú að hefja grunnskólanám að þessu sinni og alls eru nemendur í grunnskólunum um 2815 sem er fjölgun um 167 nemendur frá skólabyrjun fyrir ári síðan þegar þeir voru 2648.

Flestum nemendum og foreldrum finnst gott að komast aftur í sínar venjur hausts og vetrar þó erfitt geti reynst að kveðja sumarið. Framundan eru arkandi börn um allan bæ með skólatöskur á bakinu og því eru ökumenn beðnir um að sýna sérstaka aðgát í nágrenni skóla, segir í tilkynningu.

Mynd: Reykjanesbær.is