Nýjast á Local Suðurnes

Sérfræðingar Isavia veita nemendum innsýn í starfsemi flugvallarins

Á síðustu vikum hefur fjölbreyttur hópur sérfræðinga Isavia í rekstri og þróun flugvalla heimsótt nemendur í Heiðarskóla. Tilgangur heimsóknanna er að veita nemendum innsýn í þau fjölbreyttu störf sem unnin eru á Keflavíkurflugvelli og við þróun hans. Áhersla er lögð á að virkja sköpunarkraft nemenda, ögra staðalímyndum og eiga virkt samtal við nemendur.

Í lok maí tóku nemendur í 9. og 10. bekk á móti starfsfólki Isavia. Þeir fengu kynningu á mögulegum framtíðarstörfum á flugvellinum þar sem áhersla var lögð á að ögra staðalímyndum starfa á flugvöllum og í byggingariðnaði. Starfsfólk Isavia sagði einnig frá þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar, sem lýsir því hvernig flugvöllurinn getur þróast á næstu 25 árum, og hvaða störf verða mikilvæg í tengslum við þá vinnu. Þá voru þau hvött til að giska á hvaða störfum og hlutverkum gestirnir sinna hjá Isavia og höfðu svo loks tækifæri til að spyrja nánar út í störf hvers og eins.

Í byrjun júní hittu sérfræðingar Isavia nemendur í 4. bekk. Flugvallarsamfélagið, starfsumhverfi þess og þróun Keflavíkurflugvallar var kynnt á skemmtilegan og skapandi hátt. Nemendur fengu síðan það verkefni að hanna fræðsludeild fyrir flugvöllinn til að aðstoða sérfræðinga Isavia. Óhætt er að segja að þar hafi hugmyndirnar farið á flug. Næst byggðu nemendurnir fræðsludeildina úr endurnýtanlegu efni sem þau höfðu safnað. Útkoman var frumleg og skemmtileg og mun án efa nýtast Isavia við þróun Keflavíkurflugvallar. Það sem allir hóparnir áttu sameiginlegt var að í fræðsludeildinni var gert ráð fyrir sýndarveruleika þar sem börn hefðu tækifæri til að prófa ólík störf. Að lokum fengu þau að sjá myndir frá fræðsludeildum fyrir börn á flugvöllunum í Manchester og Kraká og rætt var við þau um hvort þetta væri eitthvað sem þau myndu vilja sjá á flugvellinum.

Í sjálfbærnistefnu Isavia er áhersla á markvissa vinnu með nærsamfélaginu, meðal annars með gagnkvæmri miðlun þekkingar og reynslu. Heimsóknir sem þessar eru mikilvægur liður í því auk þess sem nemendur veita starfsfólki Isavia frábæran innblástur. Í ljósi árangursins með Heiðarskóla skoðar Isavia nú hvort hægt sé að bjóða fleiri skólum upp á samstarf.