Nýjast á Local Suðurnes

Stálu sjö rúmum og tveimur ísskápum

Innbrot í bílskúr í Keflavík var nýverið tilkynnt til lögreglunnar á Suðurnesjum. Þaðan hafði verið stolið sjö rúmum, tveimur ísskápum og þremur skápum. Sá eða þeir sem þar voru að verki höfðu komist inn í bílskúrinn með því að brjóta sér leið í gegnum hurð á honum.

Lögregla rannsakar málið.