Fundu handsprengju við Hafnarveg
Um klukkan ellefu í gærmorgun barst lögreglu tilkynning frá björgunarsveitafólki á Reykjanesi að skammt frá Hafnarvegi hefði fundist handsprengja.
Sprengjusérfræðingar Ríkislögreglustjóra fóru á vettvang og rannsökuðu handsprengjuna, en hún reyndist óvirk æfingasprengja, þá líklegast frá dögum ameríska hersins á Íslandi. Sprengjusérfræðingar tóku æfingasprengjuna í sína vörslu, að því er fram kemur á vef lögreglunnar.
Er almenningi bent á að snerta ekki torkennilega hluti sem það kann að finna ef það telur þá vera hættulega, sprengjur eða annað og hafa samband við lögreglu.